27apríl

sorry međ bloggiđ..

Vá hvað ég er búin að vera léleg í blogginu núna undanfarið.. Ég er ekki alveg búin að vera standa mig SORRY !!! :( En það er sko hellingur búinn að gerast frá því að ég bloggaði síðast.. Ég og Krilla skelltum okkur til Kóngsins Köben á árshátíð með vinnunni og ákváðum að taka aðeins forskot á sæluna með því að fara 2 dögum á undan skaranum og á tónleikana með Stuðmönnum og Sálinni.. OMG eins og ein ljóshærð dummy myndi segja en það var bara OF gaman hjá okkur.. enda í góðra vina hópi ásamt 1800 íslendingum. Það má eiginlega segja að hápunktur ferðarinnar hafi nú samt verið rómantíski göngutúrinn okkar krillu í leit að hári niður klámgötuna þar sem að við tókum okkur smá tíma í það að kynna okkur hvernig leikföng danirnir fíla :)
En við fórum einnig í tívolíið á sunnudeginum og ég var eins og lítill krakki þar.. hehehe elska þetta rugl.
en úr einu í annað... Ég fer í aðgerðina 15 maí :S smá stress í gangi en ég mun lifa þetta af.. Þetta verður bara vonandi allt í góðu þegar þetta er allt saman búið og ég get farið af stefnunni að verða atvinnuhlunkur og komið mér á flottu brautina sem að Anita Brá er by the way að rústa þessa dagana.. skil ekki af hverju hún vann ekki Ungfrú RVK en hún tekur þetta bara í Ungfrú Ísland :) hef fulla trú á mínum keppanda.. verð bara að segja það samt að mér finst algjör dómaraskandall að Svanhildur komst ekki í Ungfrú Ísland.. en svona er þetta bara, það fer ekki allt eins og ég vill hafa það.. haha þá væri ég drottning Íslands hehehe
En allavegana þá er það Sailesh á Broadway í kvöld með Krillu. Hver veit kanski marr láti bara glitta í sig down town. Fer allavegana ekki á Pravda svo mikið er víst.. hehe
Þar til næst :)
27. apríl 2007 klukkan 09:50
Guđný Lára Árnadóttir
Engin athugasemd
02apríl

Helgin sem leiđ.

Já það var smá húll um hæ um helgina.. Það var söngvakeppni hjá vodafone og stelpan var smá neidd til þess að taka þá tt en það var samt bara gaman. Ég hafnaði í 3ja sæti með lagið I will Survive og held ég að það hafi bara verið GO GO dönsurunum mínum að þakka.. hehe En þetta var bara of skemmtilegt kvöld og held ég að allir hafi verið í essinu sínu. Laugardagurinn var bara ágætur.. kíkti aðeins í teitið heim til Mumma og ég og anna áttuðum okkur svona á því að við erum greinilega bara einar af strákunum því að við vorum einu stelpurnar í húsinu með svona 15 strákum í dágóða stund.. hahaha en svo bættust aðeins fl brjóst við til þess að jafna þetta aðeins út..

Svo er það bara ferð til Ísafjarðar á mið þar sem að ég verð í viku tæplega. Það verður fínt að komast aðeins úr bænum og í sveitina :) Brjánsi ætlar að keyra og ég ætla að borða páskaeggið mitt á leiðinni.. hehe :)

en svo eru líka bara 15 dagar til Köben :)
02. apríl 2007 klukkan 10:37
Guđný Lára Árnadóttir
1 athugasemd
30mars

Til ađ drepa niđur alla jákvćđni í dag...

Smá um stjörnumerkin...

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

   
30. mars 2007 klukkan 13:53
Guđný Lára Árnadóttir
Engin athugasemd
20mars

Gratest songs

það eru alltaf einhver lög sem að fara virkilega inn á sálina hjá okkur og hafa tilfiningarlegt gildi fyrir mann.. Hérna eru allavegana 2 lög sem að hafa þessi áhrif á mig og munu eflaust alltaf gera það.. Þetta er svo skrítið með þessar tilfiningar en þessi 2 lög geta oftast bjargað öllu hjá mér.. hehehe hey tónlist er lífið !!

Aaron Lewis feat. Fred Durst - Outside

http://youtube.com/watch?v=ALlQRMYYo7M



Radiohead - Paranoid Android

http://youtube.com/watch?v=r8asQsfn82E


Engilega Commentið ef að það eru einhver svona lög ykkur efst í huga :)
20. mars 2007 klukkan 16:59
Guđný Lára Árnadóttir
3 athugasemdir
20mars

giggilí giggilí

Ég hef svo sem ekkert neitt mikið að segja í dag en ákvað samt að skrapa saman í eina færslu.. Veitir svo sem ekki af :) En helgin sem að var að líða var bara helv... fín. Fór á konukvöldið á Sólon á föstudeginum og svo aðeins á smá pöpparölt með Önnu Björk og Söndru og endaði svo með því að Sandra fór heim þannig að ég dró Önnu Björk heim með með okkur Brjánsa og Junna sem að við hittum á Kaffibarnum og það má eiginlega segja að Anna Björk hafi gjörsamlega farið á kostum hahaha ég er enþá að hlægja af henni.. enda fékk ég þetta sms þegar ég var komin heim ,,hahaha ég vakti mömmu og pabba og sagði: kraftaverk gerast! ég er komin heim 5mín yfir 2 á föstud.kvöldi" (hún skrifaði reyndar miklu meira en þetta er það besta við sms-ið) Það kæmi mér sko ekki á óvart að ég sé komin í erfðaskránna hjá foreldrum hennar fyrir að hafa komið henni heim svona seint.. hahah ég dýrka samt þessa elsku, hún kemur mér alltaf til að hlæja :)

Svo á laug þá fórum ég, Brjánsi, Anna, Sandra, Geiri, Junni og Þórir í ammæli til Halls inni í Hvalfirði. Við vorum svona heldur róleg en skemmtum okkur mjög vel oh það má pínu segja að Hallur hafi sko alveg átt sinn part í því að halda hláturssköllunum gangandi og einnig gæjinn með punghlífina.. hahaha
En núna er marr kominn í útlandaskipurlagsnefnd því að ég, Brjánsi, Sandra, Junni, Anna og Tara ætlum að skella okkur til spánar mjög líklega í júlí og ég þarf sko alveg á því að halda :) Aðeins að fá smá sól í kroppinn minn og þar sem að þetta er svona rosalega góður og þéttur hópur þá held ég barasta að þetta eigi eftir að verða sórfínt.. Ég get allavegana ekki beðið :)
20. mars 2007 klukkan 15:47
Guđný Lára Árnadóttir
2 athugasemdir
19mars

Asnalegar fréttir teknar af mbl.is

eina sem að ég get sagt að svo stöddu er bara HVAÐ ER FÓLK AÐ HUGSA EÐA MEIRA SVONA EKKI AÐ HUGSA NEITT !!!

Veröld/Fólk | mbl.is | 19.3.2007 | 07:02

Máluðu hakakrossa á kindur

Lögreglan í Þýskalandi hefur til rannsóknar mál fjögurra ungmenna sem voru handtekin fyrir að mála hakakrossa á kindur. Einnig eru þau grunuð um að hafa misþyrmt kindunum, sparkað í þær og barið þær.

Samkvæmt lögum í Þýskalandi getur það varðað fangelsi allt að þrem árum að bera hakakrossmerkið.

Ungmennin eru á aldrinum 15-18 ára. Þau máluðu hakakrossa á nokkrar kindur í hjörð skammt frá bænum Etzenborn í norðvesturhluta landsins. Lögregla segir ekki vitað hvað ungmennunum hafi gengið til.



Veröld/Fólk | mbl.is | 15.3.2007 | 10:15

Skar af sér kynfærin á fylliríi


Fertugur Pólverji skar af sér kynfærin á fylliríi eftir að konan hans hafði yfirgefið hann.

Eftir að hafa hellt í sig rúmlega einni flösku af vodka greip maðurinn, Tadeus Konopizc, stóran hníf og skar af sér getnaðarliminn og punginn.

Honum tókst síðan að hringja í lækni og segja frá því hvað hann hafði gert og var send þyrla til að sækja hann og flytja hann til bæjarins Bialystok, til lækna sem sérhæfa sig í ágræðslu.

En sökum mikillar þoku varð töf á flugferðinni, og þegar loks var komið með manninn til Bialystok sögðu læknar að of langt væri um liðið til að hægt væri að græða kynfærin aftur á hann.

Væntanlega bíða hans nú margar aðgerðir sem taka munu nokkra mánuði, er læknar reyna að búa til á hann nýjan lim með því að nota húð af öðrum stöðum á líkama hans.

Frá þessu greinir Ananova.


19. mars 2007 klukkan 09:18
Guđný Lára Árnadóttir
1 athugasemd
16mars

Jæja ég fékk aðeins að liggja núna í 2 daga af sökum veikinda og beinverkja sem að skildu eftir sinn toll í bakinu á mér. Ég er samt öll að koma til núna og allt að smella saman. Ég er samt búin að vera að sofa alveg fáránlega illa og skil ekkert hvað er í gangi. Ef það er ekki martröð þá er það vottur af martröð og eh fáránlegt. Ekki það að ég sé ekki í góðum höndum en ég skil eiginlega barasta ekkert hvað er í gangi. Þetta kom til dæmis við sögu í draumnum mínum í nótt.

Að burðast með barn í draumi og vera illa við það er fyrir erfiðleikum.


nafnið Baldur: Þú átt von á merkilegri heimsókn.

Svalir: Þú átt örðuga tíma framundan, ef þig dreymir að þú standir úti á svölum og horfir beint niður fyrir þig. Sé margt fólk í kringum þig á svölunum má búast við að hégómagirnd og sjálfsálit hlaupi með þig á gönur.


Mér líst ekkert voðalega vel á þetta en svona er þetta bara :(


En allavegana þá sagði bæklunarlæknirinn mér að það gæti allt verið að hjá mér. Ég virðist hafað farið úr lið í hnéskelinni, ég er með mjög laus krossbönd og liðbönd og það lítur bara út fyrir að það sé allt í skralli en það kemur svo sem ekkert út úr þessu fyrr en ég er búin í ómskoðuninni 30 mars kl 12. Það er bara að bíða þar til þá.
En allavegana þá er smá kanski planið að skella sér á konukvöldið á Sólon í kvöld með stelpunum og láta stjana aðeins við sig. Svo er það 20 ára ammæli í hvalfirðinum hjá honum Halli aka Brjánsi2 á morgun og erum við að fara nokkur þangað þannig að þessi helgi stefnir bara í stuð :)

16. mars 2007 klukkan 11:43
Guđný Lára Árnadóttir
Engin athugasemd
13mars

Aníta Sćtasta :)

Fann þessa skemmtilegu mynd af mér og Anítu á myspaceinu hennar og ég bara elska þessa mynd :) Þessi stelpa er algjör draumur og er að fara að keppa í Ungfrú Rvk. Það verða allir að kjósa hana til sigurs..ekki það að hún þurfi svo sem á okkar hjálp að halda.
13. mars 2007 klukkan 16:49
Guđný Lára Árnadóttir
5 athugasemdir
13mars

Jæja hvað er uppi.. Nú fer að styttast í það að marr fari í sveitina og nánarst geri ekki baun í viku vá hvað það verður NICE ég get varla beðið. En allavegana þá kannast örugglega allir við MySpace. Ég er búin að vera með prófílinn minn í rúmt eitt og hálft ár núna og tók mig til um daginn og læsti svæðinu mínu þannig að bara vinir mínir kæmust inn á hann og svo í þokkabót þá eyddi ég öllum sem að ég þekki ekki og þar á meðal nánarst öllum útlendingum sem að voru í vinalistanum mínum. Ég eyddi út 284 manns, og það er ekkert smá.. hehe en núna er þetta eh líka svo miklu persónulegra :) eins og þetta á að vera. Ég skildi ekki alveg tilganginn í því að vera með fullt af liði þarna inni sem að ég talaði aldrei við og þekkti ekki baun.. Hérna er e-mail sem að ég hef fengið í gegn um myspace. hahaha hvað er málið.

From: noor

http://www.myspace.com/32782701

Date:Feb 1, 2006 3:11 AM
Flag as Spam or Report Abuse [ ? ]
Subject:hello
Body:hello
how are you?i hope you will be fine.i am noor jan khan from
pakistan.i am 24 years old.i am working in an company as elecrical
service engineer.i have 4 brother and 2 sister.i am looking for an honest
girl.i am single.i have met much more girls through internet but i have not
found any honest one sofar.i am so honest even i have sent web cam to two
freinds but after recving the web cam they do not online.i think they
thhinking in their hearts that they have done a greart job but i thinnk
they lose a great freind.it is my weaks when some one tell me lie i do not think that it may be lie therefore i have made much more mistake in my lifeeven my mother tell me that i am child upto now.she said that do not belive every one because thesse peoples are like wild peoples they do not haveheart but what can i do it is my nature i can not change it.i do not say
lie and do not except from other.
i have been trying for my ideal gril.i wana gril she pass her life with
me.i will never say lie to her.i will never made her unhappy.i wana to be
frank with her.she must share her sarrows and happies with me.i saw your pics you looking very preety.i like you too much
i not any one see her.i not wana any one touch her because i will love her.i will make her bride with my hands and i will never tease her.i will never go away from her.whenever she get unhappy from me so i will make her happy and whenever she will cry so i will dry her tears with my lips.i am
so alone here if you have free time so plesse come on line my pravite id is
noorjan_50@yahoo.com my mobile no is 092-3339124251 pakistan
i will miss you as freind in my life take care of yoour health and your family.
see you soon if you have yahoo id i can send my pics.i saw your pictures you looking very preety.
i am waiting for your response.








13. mars 2007 klukkan 16:07
Guđný Lára Árnadóttir
3 athugasemdir
12mars

Mánudagsblogg

Nú jæja.. það er kominn tími á eina færslu þar sem að Sammi er farinn að setja mig í skammakrókinn.. Helgin var svona frekar ágæt bara. Á föstudagskvöldið þá fórum ég, Brjánsi, Sandra, Anna Björk, Þorgeir og Arna í bíó á Norbit eftir að hafa hitað upp í keiluhöllinni þar sem að Sandra kom sterk inn með leyndum keiluhæfileikumm.. Orðið er á götunni að hún og Anna Björk séu komnar með keiluþjálfara og eru að undirbúa sig undir það að taka þátt í næsta íslandsmóti (ég hef öruggar heimildir fyrir þessu). Sandra og Brjánsi urðu eh ósátt fyrr um kvöldið vegna þess að Söndru finnst hún ekki fá nóga athygli frá mér en Sandra samdi svo um vopnahlé með því að gefa Brjánsa vinaskinku.. Þetta var allt saman of steikt en þetta er bara Söndru aka vargsinns aðferð til þess að tjá sig og í þessu tilfelli var það Bónus-skinka sem að varð fyrir valinu.. hehehe 
En núna er ég að vinna í því að þau fái bæði jafn mikið af mér, hver veit nema ég fái þau bara bæði eh út með mér í sumar. Vá hvað það yrði mikil snilld :) það er allavegana vert að skoða það... En hvernig er það, eru einhverjir komnir með sumarfrís/útlandaplan á hreint eða ætla allir að vera bara hérna heima á klakanum ????
12. mars 2007 klukkan 13:57
Guđný Lára Árnadóttir
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Ţekkir ţú mig ??

Innskráningar kubbur